Torfþök og Clinton

Nú fara hlutirnir að snúast við!  Nú fer að koma í tísku að hafa torfþök sem áður fyrr þótti SVEITÓ. 

Ég las í blaðinu að Bill Clinton hafi verið yfir sig hrifin af öllum torfþökunum þegar hann var í heimsókn í Færeyjum, Færeyjingunum til mikillar undrunar, en hann sá þar verndun ozone lagsins.

Mér finnst þetta mjög góð hugmynd varðandi ozone lagið.  Ég er mikill náttúruunnandi og finnst leitt oft á tíðum hve lítið mörg okkar metum þetta yndislega land okkar.

Það minnir mig á þegar ég bjó í Ástralíu að þar gerð mikil herferð gegn rusli og fólk var sektað fyrir að henda rusli.  Þá kom upp sú hugmynd að við ættum að líta á landið sem fínu stofuna okkar, þar sem allt á að vera hreint og tært.

Hvað finnst ykkur?


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála þér Steina og velkomin á vinlistann minn auðvitað á að ganga um landið eins og í stofunni heima. Clinton er nú dálítið íslenskur í sér og er hrifinn af okkur hér á klakanum. Velkomin á bloggið! kveðja Oddný

Oddný J.B. Mattadóttir (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 21:47

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er alveg sammála þér, mér finnst umgengnin um landið okkar fara versnandi.

Huld S. Ringsted, 3.10.2007 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband